Pundid fellur

Nu er kronan sterk og fataekur namsmadur sem var ad fa utborgud laun fra islandi hefur thad gott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ litli bróðir

Var að muna eftir blogginu þínu gaman að fylgjast með þér og þú átt alveg eftir að klára þig þarna í útlandinu. Skúli er einmitt að spá hvort við getum ekki heimsótt þig og Sandra var að spyrja hvort þú værir líka með brampólín í útlöndum.

Við erum orðin hrein og fín hérna sturtan var sett saman um helgina og fékk ég að vígja hana klukkan 3 aðfaranótt sunnudags þá var samsetningu lokið en margt er eftir sem vonandi klárast fljótlega. Söndru fannst þetta ganga heldur hægt og skaut á pabba sinn um daginn ,, Jesus maður, farðu að mála"

Stubbur blómstrar vel er vær og góður en finnst voða gott að láta halda á sér. Han er sofandi núna úti í roki og rigningu í vari við grillið ( ætti kannski að kveikja á því svo hann verði ekki úti).

Skúi Berg var í útilegu um helgina með skátunum svakalega gaman og svo var saumaklúbbsafmæli í gær þar sem slegið var saman hjá 3 pjökkum. Komumst einmitt að því þá að við eigum alltof mikið af börnum þau voru út um allt enda orðin 13.

Sendum þér góða strauma úr rigningunni og það er ekki laust við að við söknum þín en eins og þú segir stutt í jólafríið.

Knús og kossar frá öllum úr Lækjarfitinni

ída (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband