Á dauða mínum átti ég von...

...en ekki að ég ætti eftir að vera sammála framsóknarmönnum. Að vísu hefur framsóknarflokkurinn verið duglegur í að leiðrétta réttindi samkynhneigðra hér á landi og á heiður skilinn fyrir það. En seint mun ég fyrirgefa þeim þær skýjaborgir sem þeir reistu fyrir austan og það glópagullsæði sem flokkurinn laug upp á austfirðinga. En mér líst vel á þessar hugmyndir, að almenningur hafi greiðari aðgang að ákvarðannatökum um þau málefni sem þjóðina varðar. Það er óþarfi að hafa allt þetta fólk á alþingi sem greinlega veit ekkert meir en við sem heima sitjum og treystum þeim til að reka ríkið fyrir okkur. Valdið til fólksins segi ég, það á nú ekki að vera flókið að reka þetta litla land. Við flytjum út fisk og listir en flytjum inn ávexti og ferðamenn. Kannski væri bara hægt að fá góða húsmóður í breiðholtinu til að sjá um daglegan rekstur á íslenska ríkinu. Það gæti þó ekki verr farið en komið er.
mbl.is Lagt til að kosið verði til stjórnlagaþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Gott, blessuð sé minning hennar. Velkomin á fætur nýja framsókn ;)

Unnar Geir Unnarsson, 15.1.2009 kl. 01:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.