ALÞING HIÐ NÝJA

ALÞING HIÐ NÝJA      (1840)

Jónas Hallgrímsson

 

Hörðum höndum
vinnur hölda kind
ár og eindaga,
siglir særokinn,
sólbitinn slær,
stjörnuskininn stritar.

 

Traustir skulu hornsteinar
hárra sala.
Í kili skal kjörviður.
Bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi,
því skal hann virður vel.

 

Fríður foringi
stýri fræknu liði,
þá fylgir sverði sigur.
Illu heilli
fer að orustu
sá, er ræður heimskum her.

 

Sterkur fór um veg,
þá var steini þungum
lokuð leið fyrir.
Ráð-at hann kunni,
þótt ríkur sé,
og hefðu þrír um þokað.

 

Bera bý
bagga skoplítinn
hvert að húsi heim.
En þaðan koma ljós
hin logaskæru
á altari hins göfga guðs.

            *

 

Vissi það að fullu
vísir hinn stórráði.
Stóð hann upp af stóli,
studdist við gullsprota:
"Frelsi vil ég sæma
framgjarnan lýð,
ættstóran kynstaf
Ísafoldar.

 

Ríða skulu rekkar,
ráðum land byggja,
fólkdjarfir fyrðar
til fundar sækja,
snarorðir snillingar
að stefnu sitja,
þjóðkjörin prúðmenni
þingsteinum á.

 

Svo skal hinu unga
alþingi skipað
sem að sjálfir þeir
sér munu kjósa.
Gjöf hef ég gefið,
gagni sú lengi
foldu og fyrðum,
sem ég fremst þeim ann".

 

Þögn varð á ráðstefnu,
þótti ríkur mæla.
Fagureygur konungur
við fólkstjórum horfði.
Stóð hann fyrir stóli,
studdist við gullsprota.
Hvergi getur tignarmann
tigulegri.

            *

 

Sól skín á tinda.
Sofið hafa lengi
dróttir og dvalið
draumþingum á.
Vaki vaskir menn!
Til vinnu kveður
giftusamur konungur
góða þegna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hvað á betur við núna. Ekkert en verum bjartsýn þetta fer ekkert verr en illa

Mamma (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband