Hann elsku besti frændi minn á afmæli í dag, orðinn 3 ára.
Mikið hlakka ég til að hitta þig, eftir nákvæmlega mánuð.
Bestu hamingju óskir og innilega til hamingju með daginn.
Eina leiðin til að borða elpi er ofann í körfu.
Hún elsku frænka mín, Sandra Björg, á afmæli í dag. Elsku frænka til hamingju með daginn, aðeins töffari eins og þú átt afmæli föstudaginn 13. Í afmælisgjöf færðu nýustu útgáfuna af Rauðhetta Snýr Upp á Sig.
Einu sinni fyrir langa, langa, langalöngu, bjó lítil stelpa með mömmu sinni.
Stelpan var alltaf kölluð rauðhetta. Þó ekki fyrir þær sakir að hún ætti sér
ekki nafn. Hún var skírð eins og flest önnur börn í hennar landi. Nema líklega
strákurinn sem bjó í gulu blokkinni. En hann er ekki í þessu ævintýri, svo við
skulum geyma söguna um hann þar til síðar.
Málið með Rauðhettu var nefnilega að amma hennar, sem var
alltaf kölluð Amma, verslaði þessi líka heljarinnar bísn af rauðum hettum þegar
hún fór í Kvennfélagsferð til Dublin þarna um árið. Síðan þá hefur litla stelpan
klæðst rauðri hettu, því Amma keypti jú auðvita, eins og allar hagsýnar
húsmæður, eina af hverri stærð. Rauðhetta hafði því klæðst rauðri hettu allt
frá fæðingu. Fólk byrjaði að kalla hana rauðhettu litlu og nú mörgum árum
seinna hafði nafnið fests við hana. Rauðhettu var alveg sama, því kunni hún vel
við nafnið og var fyrir löngu búin að gleyma sínu upprunalega nafni.
En mamma Rauðhettu, var alltaf kölluð Mamma.
En nóg um það, aftur að sögunni um Rauðhettu og jú, alveg
rétt, og Úlfinn.  Það er samt óþarfi að hræðast úlfinn, hann er fastur í ævintýrinu og fer
því hvergi.
Amma var veik og Mamma vildi senda Rauðhettu til Ömmu með
hressingu. Körfu fulla af rauðvíni, smákökum og risastóri súkkulaðiplötu, því
Amma elskar súkkulaði. En Mamma? spurði Rauðhetta, væri ekki betra að færa Ömmu
meðal, frekar en Rauðvín. Humm svaraði Mamma, jú... líklega en við höfum bara
alltaf gert þetta svona. Hummm, hugsaði Rauhetta, kyssti Mömmu bless og hélt af
stað.
Amma bjó ein í litlu húsi í skóginum og Rauðhetta rataði
auðveldlega til Ömmu, því hún hafði oft farið í heimsókn með Mömmu til Ömmu.
Á leiðinni til Ömmu gegnum skóginn hittir Rauðhetta ...
Ætlaðir þú að segja úlfinn? Ekki í þetta
sinn, því á gangstígnum stóð enginn annar en hoppandi bandillur...
Andrés Önd!
Andrés Önd hvað ert þú að gera hér ? Spurði Rauðhetta. Braaaa bra bra braaaaaaaaa,
svarði Andrés Önd. Eeeee hérna, nú tala ég ekki önd, sagði Rauðhetta. Ert
þú ekki eitthvað að ruglast? Þetta er ekki þitt ævintýri. Braaa bra Braaaaaaa
Bra Bra Brrrra! Öskraði Andrés Önd greinlega mjög pirraður.
AAAhhh, ég hef
ekki tíma fyrir þetta, sagði Rauðhetta. Hún greip í hnakkadrampið á Andrési Önd, sveiflaði honum í hringi þrjá og henti honum út úr ævintýrinu.
Vííííííííííííííí bump! Heyrðist langt, langt í burtu, þegar Andrés Önd lenti í einhverju allt öðru ævintýri.
Alltaf eitthvað nýtt, sagði Rauðhetta og andvarpaði.
Nú ætti Úlfurinn að fara láta sjá sig, hugsaði Rauðhetta. En hann birtist
venjulega á blaðsíðu tvö. En Úlfurinn var hvergji sjáanlegur. Svo Rauðhetta tók upp símann og
hringdi í Úlfinn.
Úlfurinn var að fá sér hádegismat á Grænum kosti og svaraði því með fullan munn. Ummfff
smjatt, phufff smjatt, hóst, hóst. Svaraði Úlfurinn. Já, þetta er
Rauðhetta hérna, sagði Rauðhetta. Ertu ekki að koma eða? Ha, hvað, er klukkan
orðinn hálf? Spurði Úlfurinn um leið og hann gleypti síðasta bitann af agúrkukökunni.
Já, svaraði Rauðhetta, ég er að bíða eftir þér. Ja, hérna! Ég er á leiðinni sagði
Úlfurinn og rauk af stað.
Á meðan Rauðhetta beið birtist Mjallhvít. Hæ, sagði Mjallhvítt. Halló, svaraði Rauðhetta. Hvað ert þú að gera hér? Ég er Mjallhvít... Já, ég veit það, svaraði Rauðhetta. En hvað ert þú að gera hér, þetta
er ævintýrið um Rauðhettu og Úlfinn. Já, en ég er svo sæt, sagði Mjallhvítt. En þetta er
ekki þitt ævintýri. En ég er svo sæt. Já, já. Jæja sagði Rauðhetta.
Hún greip í hnakkadrampið á Mjallhvíti, sveiflaði henni í hringi þrjá og henti henni út úr
ævintýrinu.
En ég er svo sæææææææææt, plonk! Heyrðist þegar Mjallhvít sveif um loftin blá og skall niður í einhverju allt öðru ævintýri.
Loksins birtist Úlfurinn, móður og másandi. Mikið var að beljan bar í brækurnar hjá
Ingimar, sagði Rauðhetta. Ha, Ingimar? sagði Úlfurinn og klóraði sér í
kollinum. Ég er Úlfurinn, er það ekki?  Jú,
svona komdu þér að verki Úlfur. Við erum að verða of
sein með þetta allt saman, sagði Rauðhetta og sló taktinn
með tánum ótt og títt. Úlfurinn stressaðist allur upp og ætlaði aldrei að koma sér að
efninu. Loksins náði hann samt að komast að því hvar Amma ætti heima og tefja
Rauðhettu með því að benda henni á hvar mæti tína falleg blóm í vönd handa
Ömmu.
Þar skall hurð nærri hælum, sagði Úlfurinn og hélt á stað
til Ömmu. Að skammri stundu liðinni koma
Úlfurinn að litlu húsi.
Úlfurinn bankaði. Já, heyrðist sagt veikri röddu á bak við dyrnar. Já, Amma? spurði
Úlfurinn. Nei, þetta er ekki Amma, þetta eru Kiðlingarnir Sjö. Þú ert í vitlausu
ævintýri. Þú átt ekki að vera hér fyrr en á þriðjudaginn, jörmuðu kiðlingarnir
sjö að mestu einróma. OOOOOOhhhh, sagði Úlfurinn, alveg er þetta óþolandi. Úlfurinn hringdi í 118 og
fékk heimilsfangið hjá Ömmu, dreif sig til hennar og gleypti hana í einum
munnbita. Nammi, namm... Amma, muldraði Úlfurinn um leið og hann sofnaði klæddur í náttfötin hennar Ömmu.
Víkur þá sögunni aftur að Rauðhettu. Hún var búin að tína
vænann vönd af njóla handa Ömmu. Því í öllu stressinu hafði Úlfurinn sent hana
í ranga átt og Rauðhetta ekki fundið nein blóm. Jæja, þetta verður að duga
hugsaði Rauðhetta og lagði af stað. Allt í einu svífur eitthvað hvítt og blátt
fyrir framan Rauðhettu. Halló, halló hvert liggur leið? spurði Íþróttaálfurinn. Nei, ég trúi þessu ekki, sagði Rauðhetta. Fyrst var það Andréa Önd, svo Mjallhvít og nú þessi ofvirki skoppandi álfur. Rauðhetta dæsti,
tók í hnakkadrambið á Íþróttaálfinum,
sveiflaði honum í hringi þrjá og henti
honum aftur í Garðabæinn. Borðaðu ávextiiiiiiiiiii, splash! heyrðist þegar Íþróttaálfurinn lenti í Latabæ. Hvar endar þetta eiginlega, hugsaði Rauðhetta og lagði af
stað til Ömmu.
Rauðhetta bankaði á dyrnar og veik og rám rödd Úlfsins svaraði. Já, hvað? E, ég meina Jááá? Kallaði Úlfurinn og mundi nú
eftir að breyta röddinni. Er þetta hún Rauðhetta mín? Komdu nú til Ömmu sín, og
spurðu af hverju ég er með svona stór eyru og svoleiðis. Emm, ókei, sagði
Rauðhetta og gekk inn. Ekki leyndi sér hver lá í rúminu. En Rauðhetta spurði
engu að síður Úlfinn, hvernig stæði á því að hann væri með svona stór eyru.
Því hana hafði í reynd alltaf langað að vita hvers vegna úlfar hafa jú, svo
stór eyru. Það er svo ég geti heyrt betur í þér, elskan mín, svaraði Úlfurinn. En af hverju ertu með svona stór augu, spurði þá Rauðhetta. Úlfurinn sleikti út um og svarði, svo ég geti séð þig betur. Jáhá, en hvers vegna
ertu með svona stórann munn, spurði Rauðhetta. Það er svo ég geti ÉTIÐ ÞIG! gólaði Úlfurinn og gleypti
Rauðhettu í einum munnbita.
Úlfurinn var svo saddur eftir að hafa gleypt bæði Rauðhettu og Ömmu að hann
steinsofnaði í rúminu hennar Ömmu.
Veiðimaðurinn var á veiðum í skóginum en það er nú einu
sinni það sem hann gerði best. Veiðimaðurinn var vanur að líta inn til Ömmu
þegar hann átti leið fram hjá. En nú kom enginn til dyra þegar hann bankaði.
Humm, en óvenjulegt muldraði Veiðimaðurinn í bringu sér. Veiðimaðurinn gekk inn
um ólæstar dyrnar og sá Úlfinn liggjandi í rúminu hennar Ömmu með bumbuna út í loftið.
Hvað er að gerast? kallaði Veiðimaðurinn og stökk til og klippti gat á magann á
Úlfinum. Veiðimaðurinn setti upp veiðihanskana sína áður en hann dró Ömmu og
Rauðhettu upp úr maganum á Úlfinum. Úff, sagði Amma, dúdda mía, hvað það var vond lykt
þarna inni. Það gerir tófú buffið sagði Rauðhetta um leið og hún skreið út úr
maganum.
Veiðimaðurinn vildi af gömlum vana fylla magann á Úlfinum af steinum. En treysti sér svo ekki í það þegar hann fékk tak í bakið við
að beygja sig eftir grjótinu. Svo Amma náði í saumaboxið sitt og saumaði fyrir
gatið á maganum á Úlfinum. Rauðhetta, af sinni alkunnu snilli, tók í hnakkadrambið
á honum, sveiflaði honum í hringi þrjá og henti Úlfinum út úr
ævintýrinu.
Rauðhetta og Amma þökkuðu Veiðimanninum björgunina, og
buðu honum kaffi. Þá var nú glatt á hjalla og þetta ævintýri allt hafði bara
gert Ömmu gott og var hún öll hin hressasta. Rauðhetta fylgdi Veiðimanninu svo
heim eftir að þau höfðu horft á Kastljósið með Ömmu, því Veiðimaðurinn var svo
myrkfælin.
Mamma tók vel á móti Rauðhettu þegar hún kom heim.
Rauðhetta var ekkert að íþyngja Mömmu með sögunni um Úlfinn. Enda Mamma búin
að heyra Ævintýrið um Rauðhettu og Úlfinn margoft.
Köttur út í
mýri,
setti upp á
sig stýri,
úti er
ævintýri.
Held ég verði að játa mig sigraðann og ljúka þessu.
Úbbs, ég meina sko að blogga. Þetta er ekki sjálfsmorðbréf.
Ég haft svo margt fólk að spjalla við að blogg hefur reynst mér óþarft. Kannski ég blogga þegar ég fer aftur út til london.
Kemur í ljós ;)
Já, það líður mislangt milli daganna hjá ungum leikstjórum.
En þetta gengur samt allt vel. Ég er búin að hitta flesta leikarana eftir að hafa sett í hlutverk. Og búin að setja þeim fyrir svo þau geta byrjað að vinna sína heimavinnu. Æfingar byrja svo á fullu  um helgina og þá fer nú að koma aðeins meiri mynd á þetta hjá okkur.
Sýningin á eftir að falla vel að húsinu, helstu kostir þess og gallar um leið eru stærðin á salnum og sviðinu. Um leið og sviðið er stórt er það of hátt miðað við salinn. Salurinn hinsvegar er stór fyrir talað mál og söng þannig að endurvarp er lítið sem ekkert. Þessi fermetra fjöldi er engu að síður lúxus en uppbyggingin ekki.
Það skrítna við vinnu leikstjórans er að hversu vel sem undirbúningurinn er þá er aldrei hægt að segja hvernig til tóks fyrr en eftir síðustu sýningu.
En það er eins gott að venjast þessu, því þetta ætla ég að gera þar til ég drepst.
Jæja, námskeiðis helginni lokið.
Búin að setja í hlutverkin.
Spenna komin í hópinn og stemning.
Þetta verður rosalegt :)
Búningarnir að mestu hannaðir.
Gróf mynd af leikmyndinni kominn fram.
Hitti leikarana og alla sem koma að sýningunni á föstudaginn og byrja svo að vinna með leikurunum um helgina.
Mæli sviðið á mánudaginn.
Svo hefst persónu sköpunin.
All að gerast
Mættur á Egilsstaði.
Kominn með handritið í hendur og loksins kominn með eitthvað sem ég get farið að vinna með.
Búin að hitta formanninn og allt þar á hreinu.
Svo byrja æfingar á föstudaginn kemur, þá er nú eins gott að vera með allt á hreinu. Eða þannig þetta eru nú bara einhverjir krakka bjánar...
Ha...
Jú, hér eru jólin.
Gleðileg Jól allir saman :)
Þetta er nýja húsið mitt, sem ég keypti fyrir allann peninginn. Það gefur nefnilega svo helvíti vel að leika í ólaunuðum stuttmyndum í london. Allri frægðinni fylgir samt svo mikið ónæði að ég var nauðbeygður að kaupa mér hús hér í sveitinni.
Vagninn er sérstaklega umhverfisvænn og prumpa hestarnir lítið sem ekkert, enda ganga þeir fyrir hörbalæf. Svo er ég líka orðinn svo rasssíður nú á efri árum að ég á erfitt með gang, svo ég ríð um á hestunum til skiptis innandyra líka. Herbert einkaþjónn sér um heimilið en hann er blindur að mestu en algjörlega heyrnalaus. Þess vegna eru öll ljós kveikt. Turnin nota ég til að rífa kjaft upp í vindinn svo ég sé almennilegur þegar ég hitti fólk.
Þið eruð öll velkomin að kíkja við, ég veit ekki hvað er til af mat því samskipti milli mín og Hebba ganga brösulega. Það er því betra að taka með sér nesti og kannski bók, svo þið hafið eitthvað að gera. En mér leiðist fólk og verð því mest megnis að heiman.
Já, það held ég nú.
Yndislegt að vera hér.
Já, búin að vera hér í tvær vikur, og mitt fagra land er að gera sig.
Ég elska kuldann, snjóinn og laugarnar.
Og alveg rétt hvað íslendingar eru fallegir.
Annars er ég bara góður. LME ætlar að setja upp Lion King, þannig það verður nóg að gera eftir jól.
Systurnar mínar tvær hér fyrir sunnan fara með mig sem blóm í eggi og allt að gera sig.
Hummm, blogga þegar ég hef eitthvað spennandi slúður.
Já, þetta er svona upp og ofann hér í borg.
Ég er orðinn hundleiður á þessum blankheitum og verð að segja að flytja heim og vinna á leikskóla á daginn og leikstýra á kvöldin. Er annsi girnilegur kostur í augnablikinu.
Svo fékk ég beiðni um að leika í stuttmynd sem tvær ungar kvikmyndakonur eru að taka upp. Ég mæti í prufu fyrir aðra mynd sem þær voru að gera. En ég passaði ekki í þá mynd en framistaðan var eftirminnanleg svo þær fengu mig í þessa mynd.
Svo hlutirnir eru tvímælalaust að gerast.
Spurningin að halda nógu lengi út.
Ég sat og spjallaði við Felix í gær en hann var hér í stuttu stoppi. Og hann er svo mikill get up and go gaur að ég var þvílíkt innblásinn af hugmyndum eftir spjallaið.
Sem ekki veitti af því vaktin sem beið mín var ein sú leiðinlegasta sem ég hef unnið. Svei mér þá hvað útlendingar geta verið leiðinlegir. ;)
Við Robin erum svo að telja niður í barnasýningu sem við ætlum að setja upp núna í sumar hér í london. Ég skrifa og leikstýri og hann sér um að framleiða. Sem sagt ég geri það skemmtilega og hann fær það leiðinlega, alltaf góður díll.
En annars kem ég heim næsta föstudag og þá verður nú kát í höllinni.
Það held ég nú.
Já, það er margt sem leikari getur þurft að ganga í gegnum á sýningum. Þá meina ég það sem áhorfendur komast aldrei að.
Til dæmis um daginn vorum við að sýna í sal án loftræstingar þegar hitabylgja gekk yfir. Dag eftir dag slagaði hitinn upp í 30 stig fyrir utann og ekki var mikið svalara í sviðsljósunum inn í leikhúsinu. Til að auka á gleðina þá var ég klæddur í þessu fínu ullarjakkaföt, svitinn bókstaflega lak af mér. Eitthvað sem áhorfendur tóku vissulega eftir. Það sem þeir ekki vissu var að ég hafði náð mér í þessa fínu haustflensu og var því þegar vel heitur þegar ég steig á svið. Að auki stóð öryggisnæla vel inn í bakið á mér svo blóð litaði skyrtubakið fallega rósrautt í bland við svitann. Þessi næla var sett til að stytta axlarböndin sem nú hættu að sinna hlutverki sínu svo buxurnar byrjuðu rólega að síga neðar og neðar. Þarna stóð ég rennblautur af svita, með nælu í bakinu og haldandi uppi buxunum með olnboganum. Á sama tíma og ég átti að vera veraldarvanur yfirstéttar enskur herramaður. Ég fór ekki af sviðinu fyrr en byrjun annars þáttar eftir að hafa tekið þátt í mikilli sviðsskiptingu svo ekki var annað í stöðunni en láta sig hafa þetta.
Blessaðir áhorfendurnir sitja svo bara þarna í mesta sakleysi og renna hafa gaman af því sem er borið á borð fyrir þá. Og hugsa líklega, hann Unnar Geir hefur nú oft verið betri. Það er eins og hann sé eitthvað annars hugar.
Ég flutti allt dótið mitt hingað til london. Sem sagt allar mínar veraldlegu eigur, svona til að gera mér ljóst að hér bý ég.  Eitt að því sem ég fann þegar ég fara að fara í gegnum þetta allt saman. Voru skrifin mín, allt sem ég var að semja. Allt frá því að ég var 10 ára eða svo. Það sem mér finnst dýrmætast var stílabók, sem ég samdi leikrit í þegar ég var í sveit hjá afa og ömmu í hleinó. Ég á eftir að fara yfir hana en það verður spennandi að sjá. Mest er þó samið í kringum tímann þegar ég flutti suður, svona 19 til 20 ára. Rusl mest megnis og annsi tilgerðarlegt eins og
Tilveran er skopparabolti í höndum örlagana.
Mér hefur líklega fundist þetta mjög djúpt. Annað er bara nokkuð gott eins og leikrit um litla stelpu sem leitar að jólunum og annað um mann á geðsjúkrahúsi. Nokkuð gott segi ég og skrifa en ekkert sem mun líta dagsins ljós nema eftir mikla endurskoðun. En það var gaman að finna þetta.
Annars er allt gott að frétta hér. Skítblankur, sakna þess að vera á námslánum. En ég næg þessu líklega upp á eðlilegt horf fyrir jól. Vona ég, svona allavega svo ég komist heim um jólin.
Blessaðir ruslakallarnir eru fyrir utan, óborganlegt að hlusta á tuðið í þessum körlum. Þeir eru eitthvað fúlir yfir draslinu fyrir utan næstahús. En fólk virðist stunda það að stinga af án þess að borga leigu og skilur allt sitt innbú eftir. Þá mæta snillingarnir sem leiga út íbúðirnar og henda öllu út á götu. Við fátæka fólkið hirðum það sem okkur langar í og restin er skilin eftir handa ruslaköllunum til að fjarlæga. Um daginn fann ég þessar fínu yoga mottur, alltaf að græða.
Annars finnst mér merkilegt með þessa menningu að skilja eftir dót á gangstéttinni sem gagnast þér ekki lengur. Þannig geta þeir sem hugsanlega gætu notað hlutina hirt þá milliliðalaust. Mér fannst þetta erfitt fyrst. Svolítið rónalegt, en hvað með það þetta eru fullkomlega heilir hlutir, því ekki? Nú, á ég þetta flotta sjónvarp og yoga dýnur. Á móti er ég búin að henda út fötum, skóm, bókum og húsgögnum og allt horfið á örskotsstundu og allir hressir.
Allir hressir?
Íslendingar þurfa að læra auðmýkt og sýna þakklæti.
Á Íslandi lýsa norðurljósin upp himininn á veturnar og miðnætursólinn á sumrin. Loftið er ferkst, og vatnið úr krananum betra en dýrasta flösku vatnið hér í london. Gæða matvara og matreiðsla hvar sem er á landinu. Sundlaugar í nánast hverju einasta byggðarlagi og opnar allan ársins hring. Ósnortin náttúra aðeins stuttan bíltúr í burtu. Og það allra besta og Íslands dýrasta eign er þögnin, líklega okkar best geymda leyndarmál. Því þú veist ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur, þegar kemur að þögninni.
Já, já þetta er allt gott og blessað en hjálpar okkur ekki að borga skuldirnar. Rétt er það, en hvernig væri nú að reyna vinna saman og koma með lausnir. Heldur en að grýta eggjum og rífa kjaft. Að sitja tuðandi við eldhús borðið hjálpar ekki neinum og leysir engar flækjur.
Við höfum margt að þakka fyrir, listirnar blómstra og en eru allir kostir íslands ykkur fríir.  Ástandið er slæmt en það er að batna því það er verið að vinna í málunum auðvita má margt betur fara, en tuð, nöldur, væl og almenn leiðindi hjálpa engum. Hvernig væri nú að knúsa ættingja og vini og þakka fyrir allt fallegt og gott sem við eigum. Það að íslendingar sé sjálfstæð þjóð er næstum kraftaverk. Við erum allt of fá, jú við erum smáþjóð en þjóð engu að síður. Og við megum vera stolt en mont og stolt er ekki það sama.
Til gamans má geta þess að íslendingar eru rétt yfir 300 þúsund, í london einni eru yfir 500 þúsund samkynkhneigðir, íbúar smábæjarins Oxford eru rúm 300 þúsund og að lokum, yfir 5 milljón íbúar london þjást af ofvirkri þvagblöðru.
Ég bara varð að tjá um þetta, því mér leiðist frétta flutningurinn frá íslandi. Það er eins og ekkert gott sé að gerast í þessu landi. Eitthvað sem ég bara neita að trúa.
Jæja, ég held að ég sé búin að halda upp á afmæli móður minnar nógu lengi.
Ég þjónaði eigmanni drottningar til borðs í gær, hress gaur. Virtist bara nokkuð brattur og reitti af sér brandara og drakk öl.
Sýningar á Earnest gengu vel og nú er bara að skella sér í næsta verkefni. En við baldvin erum að setja saman grín heimildarmynd. Segi frá þegar nær dregur frumsýningu.
Annars er þetta bara allt við það sama. Þjóna, kenna og æfa þetta gengur svona sinn vana gang.
Búin að vera hérna sem íbúi í tvo mánuði. Sem sagt ekki námsmaður heldur maður sem vinnur og borgar skatta, tuða yfir veðrinu og agnúast út í samgöngukerfið. Og jú, jú get alveg hugsað mér að búa hérna. En samt, ég bjó á íslandi í 28 ár þar eru allir mínir ættingjar og vinir. Auðvita á ég vini hér en samt ég hef bara verið hér í 4 ár svo það er ekki alveg sami grunnurinn. Að auki þekki ég betur inn á markaðinn heima heldur en hér úti. En á móti kemur hér eru milljón tækifæri á móti hverju einu á íslandi. Samt rekar hugurinn frekar heim á vestur endann í london þegar ég að velta fyrir mér framtíðinni.
En við skulum sjá hvað setur.
En mikið ljómandi er nú leiðinlegt að fylgjast með fréttum af alþingi. Allir tuðandi kvartandi en enginn bíður neinar lausnir. Er þetta ekki vandamál þjóðarinnar allrar? Hvernig væri nú að hætta að haga sér eins og sérvitrir einsetu karlar og drullast til að þagna og fara vinna. Koma þessu í gang halda upp á það sem gott er og taka höndum saman og leysa þá hnúta sem en eru óleystir. Hana nú!
Já, hvað haldið þið? Er ekki nema bara búið að slá til afmælis á Selási 16. Og Boggan sjálf í aðalhlutverki. Sem sagt hún mamma á afmæli í dag. Til lukku með daginn og njótu, mamma mín.
Mamma og hún litla mín.