Frábær hugmynd

Já, ekki þarf að spyrja að ungum sjálfstæðismönnum. Þarna kom lausnin á málinu, einkavæða. Aldrei hefur einkavæðingin klikkað og alltaf hefur hún komið neytiendum til góða. Hér í englandi eru til dæmis allir í sjöunda himni yfir einkavæðingum Járnfrúarinnar og taka himinlifandi öllum gjaldskrár hækkunum á gasi, rafmagni og síma. Því nú fara peningarnir í vasa ríkrar kalla í staðinn fyrir að vera notaðir til að púkka upp á gamalt fólk og sjúklinga. Eins veit ég að íbúar á landsbyggðinni heima á íslandi eru dauðfegnir að vera ekki með pósthús og banka í hverju krummaskuði. Og geta því gert sér dulítið ferðalag svona til tilbreytingar þegar þarf að senda pakka eða sinna fjármálunum. Já lifi einkavæðingin alheimslausnin á öllum vandamálum. Sérstaklega þeirra sem ekki hafa bein í nefinu eða getu til að leysa nein mál sjálfir, benda bara á frjálsamarkaðinn. Látum markaðinn bara leysa þetta, hvaða markað? Þennan sama frjálsamarkað sem sigldi öllu hér í strand og botnhvofldi þjóðarskútunni?

Já, mér líst mjög vel á þessa hugmynd, meira af þessari einkavæðingu. Til dæmis myndi enginn vita af íslandi nema fyrir bankahrunið. Kannski getum við líka keyrt orkufyrirtækin í þrot.

Ungir sjálfstæðismenn, guð hjálpi okkur.


mbl.is SUS vill einkavæða Orkuveitu Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Hljómar eins og þú hafir hugsað þetta alveg út í gegn.

Geir Ágústsson, 20.9.2010 kl. 12:54

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Já, já þetta þetta smell virkar.

Unnar Geir Unnarsson, 20.9.2010 kl. 14:23

3 identicon

Þetta er gott mál að gera þetta.

Kristinn Agnar Eiríksson (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.