Jól

Jú, hér eru jólin.

Gleðileg Jól allir saman :)

jolamynd.jpg

 Þetta er nýja húsið mitt, sem ég keypti fyrir allann peninginn. Það gefur nefnilega svo helvíti vel að leika í ólaunuðum stuttmyndum í london. Allri frægðinni fylgir samt svo mikið ónæði að ég var nauðbeygður að kaupa mér hús hér í sveitinni. 

Vagninn er sérstaklega umhverfisvænn og prumpa hestarnir lítið sem ekkert, enda ganga þeir fyrir hörbalæf. Svo er ég líka orðinn svo rasssíður nú á efri árum að ég á erfitt með gang, svo ég ríð um á hestunum til skiptis innandyra líka. Herbert einkaþjónn sér um heimilið en hann er blindur að mestu en algjörlega heyrnalaus. Þess vegna eru öll ljós kveikt. Turnin nota ég til að rífa kjaft upp í vindinn svo ég sé almennilegur þegar ég hitti fólk.

Þið eruð öll velkomin að kíkja við, ég veit ekki hvað er til af mat því samskipti milli mín og Hebba ganga brösulega. Það er því betra að taka með sér nesti og kannski bók, svo þið hafið eitthvað að gera. En mér leiðist fólk og verð því mest megnis að heiman.

Já, það held ég nú.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

svona gaman hjá þér í jólafríinu hjá bestu fjölskyldunni og jafnframt þeirri skrítnustu?

aðalheiður björt (IP-tala skráð) 25.12.2011 kl. 21:15

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Yubb ;)

Unnar Geir Unnarsson, 26.12.2011 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband