Ekkert væl

Jæja,

Það mæti bara halda að það væri ekkert í gangi. Enda er svo sem ekkert merkilegt þannig séð í gangi. Þetta gengur bara sinn vanagang, kennararnir eru samir við sig, nemendurnir líka og ég bara mest líkur sjálfum mér.

Það helsta er kannski að það var verið að benda mér á að sækja um yoga-kennsluréttindanám. Þá gæti ég unnið með skólanum, um helgar og í fríum. Hverjum hefði svo sem dottið í hug að ég ætti eftir að verða yogakennari? Ekki mér, það er nokkuð víst. En það er líka eins gott að mér gangi betur en um páskanna þegar ég var að sýna fjölskyldunni yoga-æfingar og snéri mig næstum úr hálsliðnum. Verst var þegar ég var að syngja með pabba, hildi og kirkjukórnum á kirkjuloftinu í fermingunni hennar Aðalaheiðar, með snúinn háls. Ég fékk nefnilega súper ofur verkjatöflu hjá mömmu, sem gerði það að verkum að ég fann ekkert til né frá. Þetta svolítið eins og vera drukkinn alls staðar nema í hausnum. Og svo þegar fjölskyldan gekk til altaris vildi ekki betur til en svo að Unnarsson flaug niður stigann en tókst, þökk sé verkjalyfunum, að lenda dúnmjúkt á kirkjugólfinu á fjaðurmögnuðum fótleggjunum. Enginn var því við flugferð þessa nema ég og kannski skaparinn, nema hann hafi verið of upptekinn við að taka á móti Aðalheiði. Kannski kenni ég bara gömlu fólki sem getur hvort sem er ekkert hreyft sig eða óléttum konum sem mega ekkert gera. Þá snýst enginn úr hálslið. Samt get ég alveg mælt með nuddi í eldhúsinu hjá Jóu í brekkubæ, hún nær manni nokkuð góðum sko.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

yogakennari ekkert annað þú ert allavega nonn liðugur

Mamma (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 09:08

2 identicon

Já ég held að ég eigi aldrei eftir að gleyma því þegar þú varst að sýna okkur þessar æfingar dagin fyrir ferminguna mína.. ég gaf þér allavega minjagrip svo þú myndir alls ekki gleyma þessu. Já það gerast margir góðir og skemmtilegir hlutir í eldhúsinu á Brekkubæ :)

Aðalheiður (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 15:26

3 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Hehe ;)

Unnar Geir Unnarsson, 23.1.2009 kl. 19:17

4 identicon

Já hún móðir mín kann að pína fólk.. alveg gríðarlega gott vont nudd hjá henni :)

Aldís Fjóla (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband