Orðlaus...
12.8.2008 | 07:03
Ég vaknaði við píp splunku nýju vekjaraklukkunar í morgun. Ónotalegt hljóð, öllu notalegra var rigninga niðurinn á þakinu. Morgun kaffið sterkt og gott sömuleiðis súkkulaðið. Ósköp venjulegur morgun. Í dag liggur fyrir mér að dansa frá morgni til síðdegis. Hlutskipti mitt gæti verið vera, ekki satt? Grísið gengur ágætlega, við förum að setja senur núna á fimmtudaginn. Sem verður tilbreyting frá öllum setunum og pælingunum síðustu vikurnar. Á morgun förum við í þjóðleikhúsið að finna búninga. Annars er hér allt með kyrrum kjörum. Ég átti yndislega afmælishelgi, þakka kveðjurnar. Skrifa meira þegar fingur og hugur eru betur til þess fallnir að tjá sig.
Lifið heil
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.