Rússíbanareið hugans

Jæja, það er aldeilis sem gengur á í höfðinu á mér núna. Eina stundina langar mig helst að kveðja þessa vælukjóa og halda á önnur mið. En aðra langar helst að sökkva mér niður í lærdóm og sigra heiminn fullur af innblæstri og eldmóð. Það sem ég þarf að gera núna að að læra þekkja forspor niðursveiflunar svo ég geti stoppað hana. Og minna hugann á að svona vilji ég hugsa þegar ég er í uppsveiflu eða bara þarna rétt á milli. Það er kannski óþarfi að vera í endalausum sveiflum alla tíð. En svona gengur þetta. Þessi stutta vika búin, frí á morgun en æfingar allann sunnudaginn. Svo eru bara þrjár vikur í prófið. Þetta er allt að koma. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér er sagt að það eitt að blogga, bæti geðheilsuna, enda í niðursveiflu geturðu lesið eigið jákvæða bloggið, um hvað lífið er dásamlegt og þú fullur af hugmyndum. 

Og hvað gerist eftir 3 vikur segirðu? hvað langt frí? og hvað svo... skóli í allt sumar? og hvenær kemurðu to Iceland?

Jæja, heyrumst. Hrefna

Hrefna (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 20:57

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Ég fæ alveg tvær heilar vikur. Pabbi/Mamma/Aðalheiður koma til mín í viku. Ekkert ísland í sumar ;(

Unnar Geir Unnarsson, 16.5.2008 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband