Nýr effel?

Ég hélt að ég væri staddur í franskri bíómynd þegar ég vaknaði í morgun. Effel turninn í smíðum blasti við mér. En eins og allir vita sést effel turninn úr öllum gluggum húsa í bíómyndum sem gerast í parís. En ekki var nú svo, þetta er bara einhver byggingarkrani. En maður getur samt látið sem svo sé. Í tilefni af þessari morgun sýn ætla ég að tala með frönskum hreim í allan dag.

ps. Það gengur illa að hlaða inn myndum af turninum reyni aftur seinna.

pps. Ef þið fréttið af furðuhlutum á flugi þá er það bara ég. Morgunkaffið var í sterkara lagi í morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ

Þurfti sterkan sopa til að vakna í morgun, við spjölluðum kannski aðeins of lengi í gær

Kv Ída

Ída (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 19:03

2 identicon

hann faðir þinn hefði þegið að vera í kaffi hjá þér og fá sterkann sopa.

Mamma (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband