Skrítið þetta líf.

Já, það er margt sem maður tekur sér fyrir hendur. Ég sit hér fyrir framan tölvuna hlustandi á sálma Ellenar Kristjánsdóttur borðandi nóa og síríus lakkrískúlur með brilljantín í augunum að stytta armani buxur sem ég á að dansa í Grease söngleiknum.

Við vorum að til tólf í gærkvöldi að smíða leikmyndina, hún er bara nokkuð flott. Dönsuðum svo til tíu í kvöld, kannski við æfum svo söngleikinn e-ð á morgun. Þetta gengur allavega ágætlega og gæti bara verið annsi skemmtilegt. Ég set inn mynd af mér með lubbann við tækifæri.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjitt hvað þú getur gert margt í einu!

Þórunn Gréta (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 23:41

2 identicon

Þú ert mjög fjölhæfur ungur maður. Bíðum svaka spennt eftir að hitta þig. Sandra var sannfærð um það hér um daginn að þú værir í flugvélinni sem flaug hér yfir. Hún hélt kannski að það yrði móttöku athöfn eins og þegar landsliðið kom. Enda ekki ómerkari maður að mæta til landsins

Kv sys

Ída (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 15:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.