Harkan

Jæja, nú er það bara harkan sem dugar. Hörku vika í uppsiglingu, langar æfingar og allt á fullu. Dagurinn var góður í dag þetta eru skemmtilegt verk sem ég er að leika í, og það gengur vel að æfa La bohéme aríuna. Þannig ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Leikstjórinn sem ég er að keyra ljósin fyrir leyfir mér líka alveg að hafa frjálsar hendur með lýsinguna. Svo ég get því hannað þetta alveg eins og ég vil, sem er stuð. Þetta snýst svolítið um að leyfa sér að hafa gaman af þessu öllu saman, ekki satt?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú Unnar minn lífið er svo skemmtilegt að maður má ekki missa af því. Hef verið að prófa að hugsa lífið er einfalt eins og þú varst að tala um hérna og það svoleiðis svínvirkar! Lífið verður alltaf aðeins einfaldara og það er svo miklu skemmtilegra þannig.

Þú ert að gera svo rétta hluti með því að vera í þessu námi og átt eftir að vera heimsfrægur leikari eða leikstjóri. 

Söknum þín hinsvegar alveg ofboðslega mikið og værum alveg til í að hafa þig hérna hjá okkur. En maður á víst ekki að vera eigingjarn þannig að ok haltu áfram í þessum skóla þarna úti.

bestu kv. úr sveitinni Hildur og Raggi 

Hildur E (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 22:52

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Takk fyrir, sakna ykkar líka. Ég verð kannski ekki heimsfrægur, en góður verð ég pottþétt, hehe. Lífið er einfalt og fallegt, þannig er þetta bara. Gangi þér vel með undirbúninginn. Brósi

Unnar Geir Unnarsson, 21.4.2008 kl. 06:37

3 identicon

Kíki alltaf á bloggið þitt en kvitta ekki alltaf fyrir....

þetta er mjög spennandi líf hjá þér!

Vona að bloggið geri þig ekki of homesick!  Það eru ekki allir á þessu andlega ferðalagi sem þú ert lagstur í!!! auðvitað verður þú flottur og góður eftir þetta nám!  slærð í gegn, hvar sem þú verður! 

Draupnir er bara æði og myndbandið líka og lagið .. við náttúrulega sennilega vinnum, ætli Laugardalshöllin sé nógu stór? eða eigum við að bíða eftir tónlistarhúsinu.... common vera með, falla í hyldýpi eurovision!!!!  mér finnst þetta alveg dásamlegt bara allt saman, lífið er orðið eitthvað svo Páls Óskarslegt! :-).

Veistu, vorið er komið :-), blómin að vakna, fuglar farnir að kvaka! þetta er indislegt.  Vantar þig auðvitað í göngu um miðbæinn....!

Allt gott að frétta héðan, kveðja, Hrefna

Hrefna (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 10:06

4 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Auðvita, áfram ísland!! Hér er vorið komið fyrir nokkru síðan. Gott að heyra að allt er í góðu. Bið að heilsa í bæinn.

Unnar Geir Unnarsson, 21.4.2008 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband