Gengur og gengur ekki
20.8.2008 | 17:24
Já já þetta er nú allt svona frekar rólegt hérna meginn við atlants hafið. Lestarfólkið er í verkfalli en ég tek ekki lest svo mér er nokk sama. Það gera hinsvegar milljónir annara hér í borg. Var að hugsa hvað ef strætóbílstjórar í reykjavík færu í verkfall, það myndi enginn taka eftir því. Nema það væri meira pláss á götum borgarinar. Það tekur enginn strætó nema nemar og gamalt fólk, lið sem hvort sem er alltaf að kvarta.
Skólinn minn er alveg kostulegur, við erum að fara flytja í nýtt húsnæði. Hvenær veit enginn, kannski um helgina. En við nemendurnir eigum að pakka öllu draslinu, jebb við sem erum á fullu að æfa sumarsýningu skólans eigum að taka svo sem eina helgi í að flytja skólann. En eins og ég sagði þá flytjum við kannski ekki um helgina, við eigum samt að mæta um helgina því þá getum við bara æft í staðinn eða eitthvað. Svo voru þau að tilkynna okkur að það ætti að vera sýning daginn eftir að önninni lýkur...en hættu svo við það þegar í ljós kom að fólk hafði af einhverjum sökum gert sér aðrar áætlanir. En þetta ætti svo sem að vera komið í vana, maður verður samt alltaf jafn hissa.
Já, þeir eru skrítnir þessir útlendingar.
Athugasemdir
Já þið eigið ykkur líf. Mennirnir unnu að því hörðum höndum allt síðast ár að skemma það.
Kv Ída
Sæþór er farin að labba enda orðin leikskólastrákur.
Ída (IP-tala skráð) 21.8.2008 kl. 14:36
Til hamingju Sæþór, áfram gakk ;)
Unnar Geir Unnarsson, 21.8.2008 kl. 17:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.