Hvers vegna hann?
25.1.2009 | 12:26
Hvers vegna Björgvin af hverju ekki þeir ráðherrar sem lengst hafa setið í ríkisstjórn og bera tvímælalaust ábyrgð á ástandinu? Þá meina ég ráðherra sjálfstæðisflokksins, og þá helst Árna M. sem gegnir embætti fjármálaráðherra og ráðningastjóra fyrir Davíð nokkurn Oddsson. Talandi um vanhæfa menn hvers vegna situr Davíð enn á sínum breiða botni í stóli seðlabankastjóra. Það er vissulega margir vanhæfir við völd og ættu tvímælalaust segja af sér, en Björgvin G. Sigurðsson er ekki einn af þeim. Hvers vegna er það alltaf góða fólkið sem þarf að bera baggana þungu fyrir hræsnarana sem hoppa um samviskulausir. En Björgvin á heiður skilið fyrir að axla þá pólitísku ábyrgð sem hann ber sem ráðherra á hruninu og væri óskandi að fleiri en hann einn gerðu slíkt hið sama.
Fimmti ráðherrann sem segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er einfaldlega af því að Björgvin ber skynsemi til að segja af sér. Hann hefur samvisku. Hann er toppmaður í íslenskum stjórnmálum í dag.
Haraldur Bjarnason, 25.1.2009 kl. 14:15
Algjörlega sammála því.
Unnar Geir Unnarsson, 25.1.2009 kl. 15:47
Ertu ekki örugglega í appelsínugulu!
Nei annars, vertu bara í London með huga og hönd, þetta hér á klakanum fer bara vonandi vel. Maður er bara einhver maur. Samt eitthvað að mótmæla og potast aðeins og svona... gera sitt. Jájá.
Hér eru allir ráðamenn fárveikir... pældu í því! komdu og kenndu þeim og okkur hinum yoga jájá... þá kannski slaka axlir niður og svona...
Á að fara að sofa... á alltaf svo erfitt með það, tými því ekki... maður vaknar á miðnætti...
Hrefna (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:41
Er svo sammála þér! Björgvin er svo ungur og nýbyrjaður í stjórnmálum að hann bar síst ábyrgð á þessu hruni - búinn að vera í embættinu í tæp 2 ár maðurinn. Hans afsögn var auðvitað táknræn, en ég hefði viljað sá alvöru viðurkenningu á ábyrgð með afsögn einhvers sem hefur stýrt landinu síðustu 20-30 árin.
Agnes (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.