Loksins

Jæja þá er prófið að baki, og gekk bara vel. Sýningarnar mínar féllu í góðan farveg og þóttu leikmynd, leikmunir, lýsing, búningar og leikur til fyrirmyndar auk þess sem meira máli skipti að leikverkin sjálf og þar með verkefnið í sjálfu sér vel leyst. En það sem mér þótti vænst um var að fá tækifæri til að túlka Hamlet á enskri tungu á enskri grundu. Að vísu fékk ég ekki að segja hin fleygu orð To be or not to be en ég tugði marga aðra tungu flækjuna. En shakespear liggur samt betur í íslenskum kjafti en breskan sem sem fyrirstéttin hér tyggur. Veit ekki hví en svona er þetta bara fyrir mér. Seinni hlutinn var að vísu annsi stífur en fyrst sýndi ég málverks verkefnið mitt, hljóp svo upp með áhorfendum og lék einn pabbann í Mamma Mía. Þar næst var svo Hamlet og þar sem ég var að troða mér í sokkabuxurnar er kallað Hamlet tilbúin áhorfendur á leiðinni niður. Ég var því að klæða mig á hlaupum í restina af búningnum og hef líklega litið glæsilega út ber að ofann í sokkabuxum með buxur, skyrtu, kuta og leðurstígvél á sprettinum eftir ganginum. Ég kláraði svo að að klæða mig baksviðs eftir að hafa gargað á Jóhönnu sem færði mér vesti í stað hálsfesti sem er mjög mikilvæg í senunni. Það er að segja festin ekki Jóhanna.  En þetta gekk upp að lokum. Eftir Hamlet var ég svo plötusnúður í klúbb í því verki klæddi ég mig svo baksviðs fyrir þar næsta verk. Sem var chicago söngleikurinn. Já, ég leik í söngleik dansandi um í jazzballet skóm og þröngum tangó klæðum. Hverjum hefði dottið það í hug? Ekki mér svo mikið er víst. En fyri hlutinn var öllu léttari en þá sýndi ég eitt verk sem var að fullu uppset og tilbúið. Og lék bara einn feitann dólg í La Traviata óperunni, sem betur fer sat ég bara á mínum feita botni þar og trallaði með kórnum.

Enda var heimilisfólkið hér á framabraut algjörlega búið á því á laugardaginn. En við þrifum samt íbúðina hátt og lágt. Um kvöldið eldaði ég svo kjúlla fyrir liðið því þau hafa verið svo dugleg að hjálpa mér þessa önn.

Núna erum við á fullu eldri nemendurnir að æfa leikrit með ítölskum leikstjóra, sem er nú efni í sér færslu útaf fyrir sig.

Seinna. 


Próf

Prófið er í fyrramálið(nú sem sagt þegar þú lest þetta) ég leikstýri tveimur og leik í 5 af 10 verkum þetta árið, nokkuð gott. En nú er klukkan að ganga 3 hér í borg og ræs um 7 í fyrramálið, þannig ég býð bara góða nótt.

 


Lokatörn

Jæja, uppskeran var í takt við erfiðið. Ég kom tveimur verkum í prófið. En ég er gjörsamlega búin á því, og hef sjaldan verið eins þreyttur. En nú eru bara fjórir dagar eftir af þessu rugli, þetta hlýtur andskotan að hafast.

Skrifa meir, ef ég kemst einhvern tímann heim fyrir miðnætti. 


Stjörnuspá

LjónLjón: Það er engu líkara en þú sért í einhverjum öðrum heimi þessa stundina. Þú vilt vita meira, sjá meira og upplifa meira.
Hummm?

Að vera eða ekki vera...

Jebb þá er ég búin að prufa að leika Hamlet á enskri tungu á enskri grundu. Og gekk bara nokkuð vel. Ekki gekk eins vel með söngverkið mitt summertime, það er sem sagt orðið söngleikur núna. Já, þeim fannst það gangur betur upp á þann veginn heldur en hinn. Svona er nefnilega skólinn minn lifandi, verkið gekk ekki upp sem söngleikrit en þau voru ánægð með verkið. Svo þau lögðust undir feld og lögðu til að ég héldi áfram með þetta verk en setti upp alvöru söngleikrit í sumar. Jebb annars er allt að verða vitlaust hér, þessir blessaðir álfar sem eru að læra með mér föttuðu skyndilega að önnin væri á enda og nú er bara æft á hverju kvöldi og allar helgar. Þannig að meðan ég er að settja upp þriðju eða fjórðu sýningu á verkunum mínum eru þau að setja upp fyrstu eða aðra. Þetta blessaða fólk, svo kvartar þetta eins einhver sé að neyða þau til að gera þetta. Þau gátu bara drullast til að byrja fyrr. Ég er búin að sýna eina sýningu á hverjum sýningardegi þessa önn. Og hana nú. Í gær var ég á æfingu til hálf þrjú eftir langan dag sem hófst á yoga eins og venjulega og jazz dansi svo þrekæfingum í fimleikum og svo lék ég í fjórum sýningum og sýndi eitt verk eftir sjálfan mig. Þannig að þegar deginum í dag lauk klukkan níu leið mér eins og ég væri í fríi. Reyndar á ég eftir að ganga tvo verk sem ég er að æfa á morgun og undir búa tvær æfingar á öðrum verkum en samt klukkan er nú bara ellefu. 

En hvað er í gangi með gengið á krónunni, þetta er að drepa mann lifandi. Húsaleigan fyrir herbergið mitt litla er nú komin uppí 60 þúsund á mánuði. Jóhanna viltu vinsamlegast koma Steingrími J. í málið!

 


Er á meðan er

Jæja, ég er nú eitthvað léttari í dag. Ég kom annsi miklu í verk í dag svo þetta lítur betur út. Á morgun sýni ég fyrstu sýnunguna á songplay-inu mínu, eða söngverkinu. Ég valdi summertime og smiðaði lítið verk um þrælafjölskyldu sem leyfir sér að gleyma þjáningunni og dreyma um betri tíð. Ég er mjög heppin með leikara og ég vona að áhorfendur nái því sem ég hannaði, kemur í ljós. Annars verð ég að leika sjötugann franskann gleði karl og 45 ára hollenskan flugmann á morgun. Skrítið líf að vera leiklistar nemi.

Æi voðalegt er þetta

Já, það er eitthvað þungt í mér hljóðið um þessar mundir. Þessi skóli er alveg er ganga frá mér, held ég bara. Eins og það er margt sem ég hef lært og hefur verið mér til góðs er alveg jafn margt sem er að gera mann gráhærðan(nema kollvikin þau eru sólbrún um þessar mundir). Ég var í skólanum alla helgina og verð á æfingum öll kvöld næstu viku og næstu tvær helgar en prófin eru 5 júní. Fyrir utann að vera níu tíma á dag í skólanum auk þess að þurfa að vinna heimavinnu er manni svo skipað að eiga sér líf fara í leikhús, lesa leikrit og ná sér í maka. Já, ókei ekkert mál ég hætti bara að eyða óþarfa tíma í svefn og mátíðir þá ætti þetta að smella saman. Arrrg, já svona er þetta bara stundum. Maður ætlar algjörlega vitlaus að verða og svo borgar maður hálfa millu fyrir önnina. Þetta er náttúrulega bara rugl ekki satt? En hér er ég svo það eins gott að maður drullist til að læra eins og maður og hagi sér. Ég get svo bara sofið út og horft á sjónvarpið eða heimsótt vini mína næstu 60 árinn sem ég á eftir ólifað. En þangað til er ég að læra leiklist í litum einkareknum skóla í bretlandi þar sem fólk leggur sig allt fram um að gera hlutina eins fólkna og með sem mestu líkamlegu erfiði og hægt er. Góða nótt

Jóhanna og Jóhanna

Já, þær kunna þetta stelpurnar ,Jóhanna og Jóhanna.

4 vikur eftir...

...og aðeins 3 vikur í próf. Jæja, þá byrjar stríðið aftur. Nú verður allt á fullu fram að 6 júni en þá er prófa dagurinn mikli. Seinnustu vikuna erum við svo að vinna sýningu með utann skóla leikstjóra. Þetta leggst bara ágætlega í mig, en verður hörkupúl að komast í gegnum þetta. Á sem sagt ekki frí fyrr en 14 júní.

En miðannar fríið var yndislegt á íslandi, frábært að hitta fólkið mitt. Skrínin hjá Hildi og Ragga var mér dýrmæt stund og Huginn Bjarki algjört draumabarn. Ég hlakka alveg ógurlega til að mæta aftur í sumar en þá ætlum við pabbi að halda upp á 90 ára afmælið okkar. Þið lesendur góðir getið farið að safna fyrir stórgjöfum sem henta stórafmæli sem þessu. 


heima er bezt

Tolvan min er lasinn, er ad stelast i skolatolvuna. Er ad koma heim a morgun, thad a nefnilega ad skyra litla fraenda nyasta um helgina. Skrifa frettir seinna.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband