Að vera eða ekki vera...

Jebb þá er ég búin að prufa að leika Hamlet á enskri tungu á enskri grundu. Og gekk bara nokkuð vel. Ekki gekk eins vel með söngverkið mitt summertime, það er sem sagt orðið söngleikur núna. Já, þeim fannst það gangur betur upp á þann veginn heldur en hinn. Svona er nefnilega skólinn minn lifandi, verkið gekk ekki upp sem söngleikrit en þau voru ánægð með verkið. Svo þau lögðust undir feld og lögðu til að ég héldi áfram með þetta verk en setti upp alvöru söngleikrit í sumar. Jebb annars er allt að verða vitlaust hér, þessir blessaðir álfar sem eru að læra með mér föttuðu skyndilega að önnin væri á enda og nú er bara æft á hverju kvöldi og allar helgar. Þannig að meðan ég er að settja upp þriðju eða fjórðu sýningu á verkunum mínum eru þau að setja upp fyrstu eða aðra. Þetta blessaða fólk, svo kvartar þetta eins einhver sé að neyða þau til að gera þetta. Þau gátu bara drullast til að byrja fyrr. Ég er búin að sýna eina sýningu á hverjum sýningardegi þessa önn. Og hana nú. Í gær var ég á æfingu til hálf þrjú eftir langan dag sem hófst á yoga eins og venjulega og jazz dansi svo þrekæfingum í fimleikum og svo lék ég í fjórum sýningum og sýndi eitt verk eftir sjálfan mig. Þannig að þegar deginum í dag lauk klukkan níu leið mér eins og ég væri í fríi. Reyndar á ég eftir að ganga tvo verk sem ég er að æfa á morgun og undir búa tvær æfingar á öðrum verkum en samt klukkan er nú bara ellefu. 

En hvað er í gangi með gengið á krónunni, þetta er að drepa mann lifandi. Húsaleigan fyrir herbergið mitt litla er nú komin uppí 60 þúsund á mánuði. Jóhanna viltu vinsamlegast koma Steingrími J. í málið!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tíminn líður hraðar þegar nóg er að gera:) Mér skilst nefnilega að maí sé að verða búin veit ekki alveg hvert hann fór.

Við verðum bara að fara að skrifa honum Steingrími þetta gengur ekki lengur.

Kv Ída sys

Ída (IP-tala skráð) 23.5.2009 kl. 10:01

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Nákvæmlega, hér samt svo mikil veður blíða að maður getur samt ekki komist hjá að taka eftir því að sumarið er komið. Var að pæla hvort þið Hildur gætuð rifjað upp takatana síðan í sumar og skellt saman texta við e-ð kúl lag fyrir þann gamlasta?  Kveðja úr þrælakistunni ;)

Unnar Geir Unnarsson, 23.5.2009 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.