Jæja, þá er þetta komið í lag.
14.10.2008 | 20:54
Ekki fjármálin heldur tölvan. Ég, alveg sjálfur sat með sveitt kollvikin og hlóð niður forrit og ýmislegt annað sem tölvuna mína vantaði langt fram eftir kvöldi í gær. Þetta gat hann, strákurinn.
Chekhov hefur oft verið nefndur á þessu bloggi, oft í neikvæðri merkingu. En nú skiptast veður í lofti, ég er nefnilega að leika skemmtilegan kall í skemmtilegu Chekhov verki. Verkið kallast The Boor eða Ruddinn. Kannski skemmti ég mér svona vel því ég leik miðaldra fýlupoka, gæti verið eitthvað sameiginlegt með okkur.
Fyrsta ársnemarnir sögðu mér að þeir hefðu sumir lesið bloggið mitt og ekkert litist á blikuna. Þetta væri annað hvort hræðilegur skóli eða þessi Unnar Geir væri verulega þunglyndur og svartsýnn maður. Þegar á hólminn var svo komið reyndist skólinn hreint ekkert hræðilegur...
Spurning um að ritskoða það sem maður setur á netið?
Lifið heil, elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kominn i samband
13.10.2008 | 20:16
Jaeja tha er tolvan ad komast i lag. Hun hefur verid ad strida mer uppa sidkastid. Roi ibudar felagi minn gerdi vid hana, vidgerdir standa enn yfir. Til daemis get eg ekki notad islenska stafi, sem er midur. Thad er nefnilega erfitt ad skilja thessa utlensku stafsetningu. En her er eg og allt i godu. Thakka godar kvedjur. Skolinn gengur vel og allt lytur vel ut. Liklega er eg ad fara flytja, kannski er eg ad fara leiga med tveimur islendingum. Sem er alltaf gott, their bua naer skolanum og eru ekki klikkadir leiklistarnemar. Eg hef fra morgu ad segja en geri thad frekar thegar tolvan er komin i gang.
Lifid er einfalt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Minning
9.10.2008 | 10:02
Nú hefur hún elsku amma mín loksins fengið friðinn. Amma mín í Merki var yndisleg kona sem vildi allt fyrir mann gera. Með bros á vör og mjúka lykt af fillterslausum camel tók hún opnum örmum á móti gestum í dyrunum á Merki og leiddi að svingandi tertuhlaðborði. Endilega fáið ykkur meira, þetta er svo gott í kroppinn, var hún vön að segja. Amma sem ég man eftir er Dísa í Merki á rauða bílnum á fleygi ferð í öðrum gír, amma í eldhúsinu að elda eitthvað í brúni sósu eða amma að hreinsa beðinn í garðinum. Amma og Afi í Merki voru mér góð og ég á margar minningar um þau sem ég geymi í hjarta mér. En ég man líka eftir Ömmu á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum eftir slysið. Ég heimsótti hana oft og stundum náðum við að eiga stund þar sem hún vissi af mér. Þær minningar eru mér dýrmætar. En þegar ljóst var hún myndi ekki ná bata urðu sporinn sífellt þyngri. Eftir að ég
flutti suður var ávalt erfitt að koma austur og sjá hana liggjandi þarna hjálparvana. Þessa sjálfstæðu sterku konu sem hafði helgað líf sitt að hjálpa öðrum, konu sem aldrei vildi vera upp á aðra kominn. En svona er lífið og lítið við því að gera. Aðeins góður guð getur hjálpað okkur að skilja hvers vegna hún Amma mín þurfti að ganga þessa þrautargöngu. Ég er feginn að hún þarf ekki lengur að kveljast og að hún hefur loks fengið hvíldina sem hún svo þráði. Ég þakka guði fyrir stundina sem við áttum saman síðast og ég veit að hún kveið ekki ferðinni sem hún átti fyrir höndum.
Elsku Amma, Guð blessi minningu þína og geymi.
Nú legg ég augun aftur,
Ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Foersom-Sb 1871-S. Egilsson
Unnar Geir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Engar fréttir
25.9.2008 | 06:45
Nýja húsnæðið er alveg að gera sig og andinn sem fylgir nýnemunum er góður. Þetta lítur allt mjög vel út. Ég sýni mitt fyrsta leiktjórnarverkefni 16 október. Það er leikmynd, en líf fólksins verður að vera hægt að lesa útfrá þeim hlutum sem ég vel að nota.
Engar fréttir að austan, ég skoða símann í hverju hléi og bið eftir skilaboðunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heilt ár að baki
23.9.2008 | 06:44
Jæja, þá hef ég afrekað að búa hér í ár. Þetta er allt að koma. Skólinn er fluttur, húsnæðið er að vísu ekki að fullu tilbúið. En engu að síður er þetta umbreyting til hins betra. Nýtt líf. Fullt af nýnemum sem allir sýnst bara ósköp venjulegt fólk, ungt fólk. Þau eru áhugasöm og innblásin, hvað ætli við verðum lengi að breyta þeim í vælandi vísindamenn?
Annars er ég nú mest með huga við það sem er í gangi fyrir austan. Amma mín er mikið veik. Ég vona að það taki nú enda sem fyrst, því það er það sem hún vill.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Eldgamla ísafold
10.9.2008 | 13:17
Jæja, þá er það bara pakka og henda sér upp í lest,flugvél og rútu og þá er maður mættur. Endilega hafið samband og skipuleggjum hitting. Ég verð með gamla númerið 867-0523.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðaldra unglingur
9.9.2008 | 12:33
Svona var Roger, hann var kannski ekkert sérstaklega unglegur 17 ára drengur. Líklega vegna þess að leikarinn var 29 ára leiklistarnemi sem hafði unnið að meðaltali 14 tíma á dag í 14 daga áður en sýningar tóku við. En það gekk vel að sýna. Lokaæfingin var á föstudaginn og um kvöldið frumsýndum við. Ég veit ekki hvernig en einhvers staðar frá fengum við orku og hópurinn í heild sýndi allar sýnar bestu hliðar. Á miðri sýningu byrjað loftið að leka og í sýningarlok hafði myndast þessi líka myndarlegi pollur á miðju sviðinu. Svitinn lak hinsvegar af okkur frá fyrsta dansi enda annsi heitt í ljósunum. Tala nú ekki um þegar maður er klæddur í leðurjakka með þykka hárkollu og það er slökkt á loftræstingunni. Það er nefnilega ekki hægt að kveikja á loftræstingunni því þá lekur úldið vatn um allt. Það var svo heitt að ég svitnaði í gegnum hárkolluna. Það var erfitt að halda augunum opnum því svitablandað hárgel, brilljantín og hársprey lak niður undan hárkollunni í stríðum straumum. Dansinn gekk upp og söngurinn var sá besti hingað sagði söngkennarinn. Á laugardeginum sýndum við aftur og klökkur skólastjórinn færði okkur þakkir fyrir góða sýningu og frábæra vinnu síðustu daga. Um kvöldið sýndum við í síðasta sinn fyrir troðfullu húsi og allir voða hressir. Leikari úr Grease sýningunni á west end var mjög ánægður með sýninguna og sagðist vera undrandi á hve góð sýningin væri þar sem þetta væri ekki söngleikhússkóli.
En ég er fyrst og fremst glaður að vera búin með þetta dæmi allt saman og get farið að slakka á og einbeitt mér af leikstjórnar verkefnunum mínum. En um leið glaður með mig að hafa sungið og dansað eitt stykki söngleik. Þá er það búið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Frömseining
4.9.2008 | 22:07
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Allt að gerast
4.9.2008 | 07:33
Jæja, við frumsýnum á morgun. Ég hlakka til en mest hlakka ég til að klára þetta af, við erum búin að keyra án hléa í tvær vikur. Þar með talið að pakka öllum skólanum sem hvergi fer, og smíða leikmyndina. Lang mest hlakka ég til að komast heim á klakann og faðma og knúsa allt fallega fólkið mitt. Ef það er eitthvað sem ég hef lært af því að flytja hingað út er hvað ég á góða vini og sterka fjölskyldu. Fyrir það er ég þakklátur.
En nú er það bara harkan sex og rumpum þessu af.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Skrítið þetta líf.
2.9.2008 | 22:37
Já, það er margt sem maður tekur sér fyrir hendur. Ég sit hér fyrir framan tölvuna hlustandi á sálma Ellenar Kristjánsdóttur borðandi nóa og síríus lakkrískúlur með brilljantín í augunum að stytta armani buxur sem ég á að dansa í Grease söngleiknum.
Við vorum að til tólf í gærkvöldi að smíða leikmyndina, hún er bara nokkuð flott. Dönsuðum svo til tíu í kvöld, kannski við æfum svo söngleikinn e-ð á morgun. Þetta gengur allavega ágætlega og gæti bara verið annsi skemmtilegt. Ég set inn mynd af mér með lubbann við tækifæri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)