Kvöldstund með Unnari Geir

Ahhh, búin snemma í kvöld, klukkan ekki nema hálf tíu. Mikið ætla ég að njóta þess að slappa af og fara snemma í bólið. Samt best að smyrja nesti fyrir morgundaginn fyrst,þá þarf ég ekki að gera það í fyrramálið. Huhmm, það þyrfti nú aðeins að taka til hérna í eldhúsinu. Tralla la taki til taki til... OOO mig langar í heit bað. Samt best að þrifa það fyrst, við erum nú þrír sem notum það. Tralla la þrífi þrífi baðkar...huhmm þrífi þrífi vask...huhmm ok þá, þrífi þrífi klósett. Jæja ok, þrífi gólflista, þrífi veggljós og þrífi þrífi hillu. Aaahhh baðkarið orðið fullt, best að baða sig uummmmmmmmm. Notalegt. Já, ætli það sé ekki best að blogga smá. Bloggi bloggi blogg ubbs þar fór það, búin rita þvílíkt fyndið og skemmtilegt blogg og hviss það hvarf. ARgggggG!!!! Og klukkan orðinn hálf tólf, hvað varð af frí kvöldinu mínu?

Svona, ákvað sem sagt hann Unnar Geir að eyða fyrsta kvöldinu í vikunni sem hann er komin heim fyrir miðnætti. Veit ekki alveg hvort ég eigi að láta athuga þetta eitthvað. Þetta er nú ekkert svo alvarlegt, er það?

Annars er það frétta að ég dróg bása grindina undann dýnunni, og nú er töluvert betra að leggjast til hvílu. Þó á ég eftir að fullkomna svefnaðstöðuna . Ég keypti mér samt sæng og kodda og ver fyrir allt saman. Ekki svo að skilja að ég hafi ekki haft viðeigandi fylgihluti til svefns. Ég var með allt í láni hjá Chris. Það er samt eitthvað óþægilegt að nota notaðar svefn græjur. En allt þetta kostði ekki nema fjögur þúsund kr. í Regnboga Ofurbúðinni. En það er búð sem selur allt. Ég hafði ákveðið að reyna prútta, því ég ætlaði kaupa svo mikið. En þegar afgreiðslumaðurinn byrjaði að telja upp verðin á vörunum, var ég handviss um að hann væri eitthvað að ruglast. Svo ég dreif mig að velja tvöfalda sæng, tvo kodda, ver fyrir allt og lak. Verin voru samt í einhverjum brjáluðum litum, en það var samt skárra en bleiku rósa mynstrin sem voru í boði. Borgaði í flýti og hljóp út áður en ruglan rynni af manninum.

Síðan hef ég ekki þorað að koma nálægt Regnboga Ofurbúðinni. En þegar heim var komið dróg ég bolabás grindina undan rúminu og nú ligg á dýnunni einni saman á gólfinu. Sem er skárra, jafnvel bara nokkuð gott. En þarfnast lagfæringar.Kannski get ég sleppt því að þrífa einn dag í miðannar fríinu og farið í Ikea. Það kemur í ljós.

En nú er vika í fríið. Ég verð hér í londoni, en kem heim um páskanna. Ég ætla að reyna hjálpa til við að ferma elsku litlu systur. Hún ætlar að fermast á Borgarfirði eystra og við fjölskyldan eyðum páskunum þar öll saman í einni klessu. Ég vonast samt til að komast upp á hérað til að taka eitt trival með Öddu og co. En það er hennar helsta áhugamál þessa dagana. Hún er nefnilega hætt að fæða börn alla daga.

Skólinn er að pirra mig, líklega er ég bara þreyttur. Mér var illt í fótunum í ballet í dag, og fékk ekkert hrós fyrir þá. Hún hrósaði mér hins vegar fyrir jafnvægi. Við vorum að gera svona ballerínu stellingu, upp á tíu tær og upp með hendur og standa þannig. Já, já hver veit nema ég verði bara ballerína með þrifnaðar æði þegar öllu þessu líkur.

Ég fékk nýtt hlutverk í dag, ég er kóngurinn pabbi Þyrnirósar. Ég heiti kóngur...

 Gaman af þessu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú mátt þá koma í heimsókn, tipla á tám og þrífa fyrir mig. Sandra væri örugglega til í að hjálpa þér og læra ballet.

Kv Ída í 11°gaddi.

Ída (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 11:14

2 identicon

það verður alveg hreint yndislegt að hossast í bíl  með mér, ragga og pabba alla leiðina austur á egilstaði  og til hamingju með kóngshlutverkið. Einhvern veginn held ég að þú ættir ekki að vera í neinum vandræðum með að finna þig í þeim karakter. Kemur til með að fjölga í heimilinu í kvöld og ída er strax búin að panta heimsókn um helgina til að knúsa kisurnar.

 kv. hildur, raggi og kisurnar

Hildur Evlalía (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 16:15

3 identicon

Hreingerningaróður ballerínukóngur

Helga (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 17:35

4 identicon

hæhæ..hjartanlega til hamingju með kóngahlutverkið er sammála hildi ekkert mál fyrir þig að lifa þig inn í það hlutverk En hittumst hress um páskana

heh Ída það er ekkert það er -16° hérna á egilsstöðum skoo..

Kv.Aðalheiður

Aðalheiður (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 18:40

5 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Takk stelpur. Já kannski þú takir kisurnar með þér Hildur þegar þú kíkir á mig. Hér er enn sól og blíða. Annars rigndi um daginn og þá fékk ég aftur heimþrá. Það kom nefnilega rok með rigningunni. Ég hef ekkert náð að hitta íkornana en reyni að ná mynd af þeim... Hvað meinið þið með að ég eigi auðvelt með að leika kóng hehe

Unnar Geir Unnarsson, 2.2.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.