Áfram viđ höldum
4.8.2008 | 07:04
Jćja, dýrđarhelgi ađ baki. Ég var einn heima og naut ţess í botn, mmmuu. Ég eldađi mér hangikjet međ grćnum baunum, kartöflumús og malt og appelsínblöndu. Hélt mín litlu jól. Merkilegt hvađ ţađ getur veriđ gott ađ eyđa smá tíma međ sjálfum sér. Ekki svo ađ skilja ađ ég hafi lokađ mig af alla helgina. Ég fór út á föstudagskvöldiđ og á sunnudaginn var ég niđri bć ađ undirbúa leikstjórnarverkin mín. En laugardeginum eyddi ég heima, fór ekki úr náttfötunum nema til ađ fara útí búđ.
Ég hef veriđ ađ rembast viđ ađ finna rétta mynd til ađ nota í leikstjórnarverk, sem kallast leikstjórnar mynd. Ţađ er ekki falleg mynd af leikstjóranum til ađ nota til kynningar heldur málverk af minnst tveimur persónum sem nemandinn endurskapar á sviđi. Ég held samt ađ ég hafi loks á sunnudag fundiđ rétta listamanninn, Jack Vettriano. Hann málar myndir fullar af spennu í svona art deco stíl. Einfalt, formfagurt og ţokkafullt. En sem stendur eru ţađ fimm verk sem koma til greina, en ekkert liggur á ţetta er annađ verkefniđ sem ég á ađ leysa í lok september. Hiđ fyrsta er kyrrmynd. Ţá á ađ skapa umhverfi sem fólk lifir eđa starfar í og á leikmyndin ađ segja okkur sögu ţess. Ég ćtla ađ búa til bakhliđ á leikmynd, leikarnir ţrír eru inn á sviđi en viđ sjáum persónuleika ţeirra í smáhlutum sem ţeir hafa skiliđ eftir. Einn er fyllibytta og felur flösku bak viđ stól, önnur leikkvennanna er príma donna međ hálsbólgu og skilur eftir náttslopp og hálsbrjóstsykur á međan hin er ung nýútskrifuđ og elskar súkkulađi.
Úbbs komin tími til ađ drífa sig í yoga.
Lifiđ heil.
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.