Segðu mér?

Ef ekkert loðir við teflon, hvernig er þá hægt að láta það loða við pönnuna?

Hvað á maður að gera ef maður sér dýr í útrýmingarhættu éta plöntu í útrýmingarhættu?

Þegar menn fundu upp úrið, hvernig vissu þeir á hvað þeir ættu að stilla það?

Ef hné á manni væru aftan á fótunum, hvernig myndu stólarnir þá líta út?

Ef hérafótur færir þér gæfu, af hverju var þá hérinn ekki svona heppinn?

Hvað kalla þeir kaffitímann í teverksmiðjunum?

Ef dagurinn í dag er fyrsti dagurinn sem ég á eftir ólifað, hvað var þá gærdagurinn?

og að lokum. Ef maður lendir í því að verða hálfdauður úr hræðslu tvisvar í röð, hvað gerist þá?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

allt er þá þrennt er. Hvað sem það nú þýðir.Hver dagur er bara einu sinni á ári.

Mamma (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 09:06

2 identicon

Já þú meinar það

Ída (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 12:10

3 identicon

Góðar pælingar þarna á ferð .. ef ég bara gæti svarað þeim

Aðalheiður (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 14:20

4 identicon

Ég hef alltaf svar við öllu:

Það að ekkert loði við teflon er lygi. Hins vegar brennur ekki allt fast við það.

Grænmetisæta myndi klárlega éta plöntu. Ég myndi bara klappa dýrinu og passa það vel.

Það er það flottasta við að finna upp, maður ræður öllu sjálfur. Þeir hefðu getað stillt úrið á hvað sem er.. pældu í því!

Þá væru stólarnir nákvæmlega eins og þeir eru en þeim yrði stillt öfugum upp við borðið. Bökin sneru að borðinu. Soldið eins og þegar maður sest öfugt klofvega á stól.

Af því að eins dauði er annars brauð ;) það getur aldrei orðið gæfumerki að missa fótinn.. nema náttúrulega að þá er ekki hægt að skjóta sig í fótinn... og líklega ekki heldur hægt að pissa í skóinn sinn.

Þeir sem drekka kaffi kalla hann kaffitíma, hinir tetíma.

Hann er lifaður. Morgundagurinn er alltaf ólifaður, og restin af deginum í dag, gærdagurinn alltaf lifaður.

Maður verður sjálfdauður úr hræðslu.

Leysti ég fyrir þig lífsgátuna? 

Risaknús,

Þórunn Gréta 

Þórunn Gréta (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 18:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband