Þættinum hefur borist bréf.

Hún Þórunn Gréta vinkona og frænka mín hefur álvalt svar við öllu. Hún hefur því leyst fyrir mig þá huganúta sem bloggfærslan Segðu mér innihélt. Hér koma svörin:

Það að ekkert loði við teflon er lygi. Hins vegar brennur ekki allt fast við það.

Grænmetisæta myndi klárlega éta plöntu. Ég myndi bara klappa dýrinu og passa það vel.

Það er það flottasta við að finna upp, maður ræður öllu sjálfur. Þeir hefðu getað stillt úrið á hvað sem er.. pældu í því!

Þá væru stólarnir nákvæmlega eins og þeir eru en þeim yrði stillt öfugum upp við borðið. Bökin sneru að borðinu. Soldið eins og þegar maður sest öfugt klofvega á stól.

Af því að eins dauði er annars brauð ;) það getur aldrei orðið gæfumerki að missa fótinn.. nema náttúrulega að þá er ekki hægt að skjóta sig í fótinn... og líklega ekki heldur hægt að pissa í skóinn sinn.

Þeir sem drekka kaffi kalla hann kaffitíma, hinir tetíma.

Hann er lifaður. Morgundagurinn er alltaf ólifaður, og restin af deginum í dag, gærdagurinn alltaf lifaður.

Maður verður sjálfdauður úr hræðslu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með afmælið í dag! Ég labbaði í gær með gay pride buff á hausnum og saknaði þín mikið!!

Þórunn Gréta (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 17:52

2 Smámynd: Unnar Geir Unnarsson

Takk mín kæra ;)

Unnar Geir Unnarsson, 10.8.2008 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband