Dreymir þig Geir H. Haarde?
13.8.2008 | 20:09
Ég las í því merka dagblaði Sun eða sól í dag að sú fræga manneskja sem flesta dreymir martraðir um er söngfuglinn Amy Winehouse eða Anna Vínhús. Eitthvað sem ég get vel skilið, það ómögulegt að vita hvað hún geymir í hárkollunni. Í öðru sæti var Marilyn Manson eða Margeir Mannssonur , enda er það tilgangur hans að vekja óhug fólks með útliti sínu. En það sem mér fannst merkilegast var að í þriðja sæti yfir þá frægu manneskju sem heimsækir breta í martröðum þeirra sat forsætisráðherrann, Gordon Brown eða Goggi Brúni. Hvað gerir hann eiginlega í martröðunum drepur fólk úr leiðindum, fyllir það svo miklum efasemdum um framtíðina að fólk bara missir það? Ég veit það ekki. En út frá þessari merku grein datt mér í hug hvort íslendinga dreymdi sinn forsætisráðherra Geir H. Haarde eða Gay How Ha de bra. Hann er nú ósköp góður maður og rólegur. En hann syngur stundum O, sole mio. Kannski læðist hann inn í draumaheim saklaus draumórafólks og hefur upp raust sína. Háa c-ið er það sem fer með flesta.
Góða nótt...
Athugasemdir
Drengur þó! Nú þori ég ekki að fara að sofa...
Agnes (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 06:20
það fer að koma nýr borgarstjóri í henni reykjavík það veldur sjálfsagt einhverjum martröðum
Mamma (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 09:24
Mér finnst þýðingarnar ansi góðar hjá þér.
Hvenær er aftur fríið í nóv. Nú þarf að fara að skipuleggja
kv Ída
Ída (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 18:59
Já þetta er svona í andrésar andar blaða stíl emm fríið er 3 og 4 nóv sem er öðru hvoru meginn við helgi.
Unnar Geir Unnarsson, 14.8.2008 kl. 20:09
Ég er svo illa haldin af hugmyndaleysi að ég fæ ekki einu sinni martraðir
Helga E. (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 21:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.